Þjóðarhöllin verður bylting – Þetta breytir öllu

Einar Ingi Hrafnsson segir fyrirhugaða Þjóðarhöll í Laugardal verða algjöra byltingu fyrir íslenskan handbolta. Hann leggur jafnframt áherslu á að framkvæmdirnar megi ekki tefjast enda sé fyrirhugað að Ísland verði einn af gestgjöfum heimsmeistaramóts karla árið 2031.

Þjóðarhöllin var til umræðu í nýjasta þætti Handboltahallarinnar þar sem Hörður Magnússon spurði Einar Inga hvaða áhrif ný höll myndi hafa á íslenskan handbolta.

„Þetta verður algjör bylting. Við fáum HM 2031 en við fáum það ekki ef Þjóðarhöllin rís ekki eða ef það verður einhver seinkun. Þetta hangir á lyginni. Pressan er þar, að þetta verður að vera tilbúið fyrir þetta stórmót sem við ætlum að halda með Dönum og Norðmönnum,“ sagði Einar Ingi.

Hann segir íslenskan handbolta lengi hafa vantað eiginlegan heimavöll fyrir landsliðin og bendir á að kvennalandsliðið hafi þurft að leika heimaleiki sína í öðrum íþróttahúsum.

„Okkur hefur vantað heimavöll, bæði handboltann og körfuboltann. Laugardalshöllin er í nýtingu bæði hjá Ármanni og Þrótti og við höfum misst kvennalandsliðið okkar í önnur hús. Strákarnir hafa mestmegnis verið í Laugardalshöll.“

Einar Ingi telur að með tilkomu Þjóðarhallarinnar skapist loksins aðstaða sem íslensk landslið geti kallað sitt eigið heimili.

„Núna fáum við okkar heimavöll, þetta verður Þjóðarhöllin. Ég á ekki von á því að Þróttarar verði þarna inni líka. Ef við þurfum að halda Final Four í handbolta þá verður það haldið þarna. Þetta breytir öllu.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top