Amo tapaði í Skövde
Amo)

Fyrsti leikurinn í sjöttu umferð sænsku deildarinnar fór fram í kvöld þegar Amo fór í heimsókn til Skövde og mætti heimamönnum.

Fyrir leik áttu Amo möguleika að tylla sér í toppsætið um stundarsakir en þeir voru einu stigi á eftir Kristianstad sem fékk skell gegn Sävehof í gærkvöldi. Að sama skapi gátu heimamenn í Skövde komið sér upp í topp 8 og úrslitakeppnissæti með sigri en þeir höfðu gert tvö jafntefli í röð fyrir leik kvöldsins.

Leikurinn var mjög jafn til að byrja með og leikar voru jafnir í hálfleik, 16-16. En þegar sautján mínútur voru eftir komust heimamenn fimm mörkum yfir og það reyndist of mikill munur fyrir gestina sem þurftu því miður að halda heim á leið stigalausir.

Arnar Birkir Hálfdánsson var að venju í liði Amo en hann skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf fimm stoðsendingar en besti maður Amo í leiknum var Mathias Mark Pedersen sem skoraði átta mörk á meðan besti maður Skövde var hinn bráðefnilegi nítján ára gamli Fidel Mbumba sem skoraði heil tólf mörk fyrir heimamenn.

Úrslit kvöldsins:

Skövde 34-30 Amo

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top