Sigrún Erla Þórarinsdóttir, línumaður Stjörnunnar, sleit krossband í upphafi leiks liðsins gegn HK í 5. umferð Olís-deildar kvenna á dögunum og leikur ekki meira á þessari leiktíð. Arnar Daði Arnarsson þjálfari Stjörnunnar og þáttastjórnandi Handkastsins, staðfesti þetta í nýjasta þætti Handkastsins. Sigrún Erla var ekki í leikmannahópi Stjörnunnar gegn KA/Þór um helgina vegna meiðslanna en KA/Þór hafði betur í þeim leik 32-28. Sigrún Erla gekk til liðs við Stjörnuna frá Val í sumar. Hún hafði verið valin í æfingahóp U19 ára landsliðs Íslands sem kemur saman í vikunni undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar, en verður að draga sig úr hópnum vegna meiðslanna. Stjarnan er á botni Olís-deildarinnar með tvö stig eftir töp gegn HK og KA/Þór í síðustu tveimur leikjum. Bæði lið voru án stiga fyrir viðureignir sínar gegn Stjörnunni og eru félögin þrjú því öll með tvö stig að loknum sex leikjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.