Vandræði Fram voru til umræðu í nýjasta þætti Handkastsins eftir 36–28 tap liðsins gegn FH í 6. umferð Olís-deildar karla á laugardaginn. Framarar héldu í við FH lengi vel en staðan var jöfn, 22–22, um miðbik síðari hálfleiks. Þá skoruðu FH-ingar fimm mörk í röð og lögðu grunninn að sigrinum. „Lokatölur gefa kannski ekki alveg rétta mynd af þróun leiksins. Staðan var jöfn 22–22 um miðbik seinni hálfleiks en þá kom 5–0 kafli hjá FH,“ sagði Sérfræðingurinn, Arnar Daði Arnarsson. Stymmi klippari tók undir og sagðist eiga orðið erfitt með að útskýra gengi Fram. „Það forskot létu FH-ingar aldrei frá sér og Framararnir voru að reyna að minnka þetta niður en þá bættu FH-ingar við. Vandamál Framara halda áfram og ég er í raun að verða orðlaus yfir því hvað ég get sagt til að lýsa því hvað sé að hrjá drengina í Fram. Ætli sjálfstraustsleysið sé ekki algjört.“ Stymmi sá þó jákvæð merki í frammistöðu Fram framan af leik. „Ef Einar Jónsson, þjálfari Fram, getur tekið eitthvað jákvætt úr þessum leik þá voru þeir allavega í jöfnum leik í 45 mínútur og þetta var þeirra skásta frammistaða í 45 mínútur sem ég hef séð hjá þeim í undanförnum leikjum.“ Hann minnti á erfiða leiki liðsins að undanförnu. „Þeir voru rassskelltir í bikarnum, þeir voru rassskelltir af Hrannari Guðmundssyni og í Garðabænum. Ef ég reyni að finna einhvern jákvæðan punkt fyrir Fram þá voru batamerki á leik liðsins fyrstu 45 mínútur leiksins.“ „Það er hægt að byggja ofan á það,“ bætti Sérfræðingurinn við. Fram fær Hauka í heimsókn í fyrsta leik 7.umferðarinnar í kvöld klukkan 19:30 en Fram hefur tapað fimm leikjum í röð í deild og bikar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.