Krickau setur pressu á Alfreð
Andreas Gora /AFP

Nicolej Krickau, þjálfari þýska stórliðsins Füchse Berlin, telur að Tim Freihöfer hafi unnið sér inn sæti í þýska landsliðinu fyrir komandi verkefni. Krickau hefur sent Alfreð Gíslasyni, landsliðsþjálfara Þýskalands, skýr skilaboð í kjölfar frábærrar frammistöðu hornamannsins að undanförnu.

Freihöfer hefur verið í miklu stuði með Füchse Berlin og skoraði meðal annars 29 mörk í tveimur leikjum á aðeins fjórum dögum.

Skoraði 29 mörk á fjórum dögum

Hann skoraði fyrst 14 mörk gegn Lemgo í þýsku Bundesligunni áður en hann bætti um betur og skoraði 15 mörk gegn Porto í Meistaradeild Evrópu. Krickau var spurður út í möguleika Freihöfer á að komast í landsliðshóp Alfreðs fyrir næstu verkefni.

„Okkur finnst Tim meira en hæfur til að vera með. Að mínu mati verða möguleikar hans fyrir janúar mjög miklir ef hann heldur áfram að spila á því stigi sem hann hefur gert hjá okkur,“ sagði Krickau á blaðamannafundi.

„Við vonum innilega að hann fái tækifærið því okkur finnst hann hafa unnið sér það inn.“

Alfreð hefur áður sagt að vinstri hornamannsstaðan sé ein sú opnasta í þýska landsliðinu fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í janúar. Freihöfer var ekki valinn í þýska hópinn fyrir Evrópumótið fyrr á þessu ári og segist sjálfur einbeita sér að frammistöðu sinni með félagsliðinu fremur en að velta landsliðsvalinu fyrir sér.

„Ég ætla að einbeita mér að félaginu því ég get ekki haft áhrif á neitt annað. Ef ég fæ tækifærið ætla ég að sýna að ég eigi heima þarna og hafi unnið mér inn sætið,“ sagði Freihöfer.

Alfreð Gíslason mun á næstunni velja landsliðshóp Þýskalands fyrir verkefni í nóvember en þar gæti Freihöfer fengið tækifæri til að sanna sig áður en kemur að heimsmeistaramótinu í janúar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top