Arna Sif lokaði markinu í sigri Fram
Sævar Jónasson

Fjölnir og Fram 2 mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Egilshöll.

Mikið jafnræði var með liðunum fyrsta korterið en þá áttu Fram stúlkur góðan kafla og náðu að komast 5 mörkum yfir.

Hálfleikstölur voru svo 13-16.

Eftir einungis 5 mínútur í seinni hálfleik voru Fram stelpurnar komnar 7 mörkum yfir. Fjölnis stelpur náðu svo að klóra vel í bakkann og minnkuðu í 1 mark þegar 2 mínútur voru eftir. En nær komust þær ekki og lokatölur urðu 28-31 fyrir Fram stelpur.

Hjá Fram 2 var Aníta Rut Eggertsdóttir markahæst með 7 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 18 skot.

Hjá Fjölni var Sara Kristín Pedersen markahæst með 9 mörk. Sara Xiao Reykdal varði 10 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top