Formaður HSÍ lofar B-landsliði en tímasetningin óljós
ADA

Vilji er til þess að koma B-landsliði karla í handbolta af stað en fjármögnun ræður því hvenær það verður að veruleika. Þetta kom fram í máli Snorra Steins Guðjónssonar, landsliðsþjálfara, þegar hann var spurður út í áform um B- og C-landslið á blaðamannafundi sem HSÍ hélt á föstudaginn í síðustu viku þegar 20 manna leikmannahópur landsliðsins var valinn fyrir fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppni EM 2028.

„Fyrsta skrefið var þessi elítuhópur sem ég valdi í vor og það er í döfinni að gera það aftur í lok tímabils. Það eru allir sammála um að við verðum að fá B-landslið í gang og við erum með það marga leikmenn. Þetta snýst um peninga,“ sagði Snorri Steinn.

Snorri Steinn velur 20 leikmenn fyrir fyrstu leiki undankeppninnar

Hann hefur rætt við kollega sína á Norðurlöndunum um mögulegt verkefni í mars á næsta ári.

„Ég hef talað við kollega mína í Noregi og Svíþjóð og það er á döfinni að vera með mót í mars 2027. Svo er spurning hvort við séum á þeim stað að geta þegið það boð. Það eru allir á því að við þurfum á þessu að halda en við þurfum fjármagn.“

Jón Halldórsson, formaður HSÍ, staðfesti að verkefnið væri hluti af framtíðaráformum sambandsins en gat ekki gefið upp hvenær það færi af stað.

„Þetta er í framtíðarplönunum okkar en hvort það gerist á næstu mánuðum verður að koma í ljós. Þetta mun verða, ég get alveg sagt þér það, en ég get ekki sagt til um tímasetninguna.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top