Norski handknattleiksmaðurinn Kent Robin Tønnesen, leikmaður þýska stórliðsins Flensburg, er sagður vera á leið heim til Noregs eftir 15 ára atvinnumannaferil erlendis. Samkvæmt upplýsingum norska fjölmiðilsins TV 2 hefur Tønnesen samið við norska úrvalsdeildarliðið Fjellhammer og mun ganga til liðs við félagið næsta sumar. Tønnesen er 35 ára gömul hægri skytta sem hefur leikið með nokkrum af stærstu félagsliðum Evrópu á löngum og farsælum ferli. Hann gekk í raðir Sävehof í Svíþjóð árið 2012 og eftir það lék hann með Wetzlar og Füchse Berlin í Þýskalandi, ungversku stórliðunum Veszprém og Pick Szeged, franska stórliðinu Paris Saint-Germain og nú síðast Flensburg. Það var tilkynnt í september að samningur Tønnesen við Flensburg yrði ekki framlengdur og því hefur legið fyrir að hann myndi yfirgefa félagið að tímabilinu loknu. Nú virðist næsti áfangastaður vera fundinn en samkvæmt TV 2 hefur hann þegar skrifað undir samning við Fjellhammer sem tekur gildi sumarið 2027. Félagaskiptin vekja athygli enda er Fjellhammer ekki meðal stærstu félaga Noregs. Liðið situr sem stendur í áttunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar. Tønnesen hefur leikið 148 landsleiki fyrir Noreg og skorað í þeim 360 mörk. Síðasti landsleikur hans var á heimsmeistaramótinu árið 2025. Hvorki Tønnesen né Kristian Bliznac, þjálfari Fjellhammer, vildu tjá sig um málið þegar TV 2 leitaði eftir viðbrögðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.