Nokkrar íslenskar landsliðskonur voru í eldlínunni víðs vegar um Evrópu í gær. Lovísa var markahæst þegar Benfica vann stórsigur í portúgölsku úrvalsdeildinni, á meðan Íslendingaslagur fór fram í þýsku Bundesligunni. Þá mætti Blomberg-Lippe ríkjandi Evrópumeisturum Metz í Meistaradeildinni. Lovísa Thompson átti góðan leik þegar Benfica vann 21 marks sigur á Alavarium, 36-15, á útivelli í 7. umferð portúgölsku úrvalsdeildarinnar. Benfica hafði mikla yfirburði í leiknum og fékk aðeins á sig tvö mörk í fyrri hálfleik. Staðan var 12-2 í hálfleik en Benfica skoraði 24 mörk í síðari hálfleik og vann að lokum afar öruggan sigur. Lovísa var markahæst allra á vellinum með sex mörk. Patrícia Rodrigues, Nora Leitner og Carolina Monteiro skoruðu fimm mörk hver fyrir Benfica. Íslendingaslagur fór fram í þýsku Bundesligunni þegar Zwickau tók á móti Thüringer HC í 6. umferð deildarinnar. Hvorki Lilja Ágústsdóttir leikmaður Zwickau né Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín leikmaður Thüringer HC komust á blað í leiknum. Gestirnir frá Thüringer HC höfðu betur, 33-23, eftir að hafa leitt með sex mörkum í hálfleik, 18-12. Zwickau hélt í við gestina framan af en undir lok fyrri hálfleiks náði Thüringer HC fjögurra marka áhlaupi og tók sex marka forskot inn í leikhléið. Í síðari hálfleik héldu gestirnir áfram að bæta við forskotið og voru komnir tíu mörkum yfir þegar átján mínútur voru eftir. Jana Scheib og Levke Kretschmann voru markahæstar hjá Thüringer HC með sex mörk hvor en Nina Ramusovic skoraði sex mörk fyrir Zwickau. Thüringer HC er áfram taplaust í þýsku úrvalsdeildinni með ellefu stig eftir sex leiki en Zwickau er með eitt stig. Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir mættu ríkjandi Evrópumeisturum Metz þegar Blomberg-Lippe heimsótti franska stórliðið í 6. umferð Meistaradeildar Evrópu. Metz vann tíu marka sigur, 32-22, en Blomberg-Lippe stóð vel í franska stórliðinu í fyrri hálfleik. Þýska liðið náði meðal annars að jafna metin í 13-13 undir lok fyrri hálfleiks áður en Metz skoraði þrjú síðustu mörk hálfleiksins og leiddi 16-13 í leikhléi. Blomberg-Lippe minnkaði muninn í tvö mörk snemma í síðari hálfleik en Metz tók þá öll völd á vellinum og sigldi að lokum öruggum sigri í höfn. Díana Dögg var í byrjunarliði Blomberg-Lippe og skoraði tvö mörk í leiknum. Elín Rósa kom inn á í fyrri hálfleik en komst ekki á blað yfir markaskorara í leiknum en hún gaf tvær stoðsendingar. Maxi Mühlner var markahæst hjá þýska liðinu með sjö mörk. Blomberg-Lippe hefur tapað öllum sex leikjum sínum í Meistaradeildinni á tímabilinu og situr án stiga í B-riðli keppninnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.