René Antonsen, fyrrverandi fyrirliði danska stórliðsins Álaborgar og núverandi leikmaður Nantes í Frakklandi segir leikmenn félagsins vera ansi dekraða þegar kemur að aðbúnaði og þjónustu. Antonsen gekk til liðs við franska stórliðið Nantes í sumar eftir rúmlega þrettán ár hjá Álaborg og hefur upplifað töluverðan mun á félögunum. Antonsen, sem er 34 ára gamall línumaður flutti til Frakklands ásamt eiginkonu sinni og dóttur í sumar. Í viðtali við TV 2 Nord segir hann fjölskylduna hafa aðlagast nýju umhverfi betur en hann átti von á. Hann hefur þó þurft að venjast ýmsum breytingum, bæði innan vallar og utan. „Þeir eru algjörir dekurrófur hjá Álaborg,“ segir Antonsen hlæjandi í viðtalinu. Hann bendir á að leikmenn Álaborgar þurfi varla að hugsa um ýmis dagleg verkefni sem fylgja atvinnumennskunni. „Hjá Álaborg er séð um grundvallarhluti eins og að þvo æfingafötin, liðsstjórar fylla á vatnsbrúsana og útbúa próteindrykki eftir leiki. Svo er sjúkraþjálfari stöðugt til taks til að hjálpa leikmönnum.“ Í Nantes sé staðan önnur. Þar þurfi leikmenn meðal annars sjálfir að sjá um þvottinn og taka eigin vatnsbrúsa með í útileiki. „Þetta er ekki venjan hérna. Ég held að það hafi verið mjög hollt að fá smá raunveruleikatékk því við höfum það ansi gott hjá Álaborg,“ segir Antonsen. Hann segir jafnframt að handboltinn í Frakklandi sé líkamlegri en hann átti að venjast í Danmörku og undirbúningstímabilið hafi verið sérstaklega krefjandi. Antonsen tekur þó fram að munurinn þýði ekki endilega að annað félagið sé betra en hitt. Reynslan hafi einfaldlega gefið honum nýja sýn á lífið sem atvinnumaður í handbolta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.