Orðaður við Fredericia og viðurkennir heimþrá
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Norski landsliðsmaðurinn Simen Lyse hefur opnað sig um erfiðleikana við að aðlagast lífinu í París eftir að hann gekk til liðs við franska stórliðið Paris Saint-Germain fyrr á þessu ári. Ummæli hans vekja athygli í ljósi þess að danskir fjölmiðlar hafa að undanförnu orðað hann við Fredericia frá og með næsta sumri.

Lyse gekk til liðs við PSG frá norska félaginu Kolstad í febrúar á þessu ári og skrifaði undir samning sem gildir til sumarsins 2029.

Handkastið greindi frá því á dögunum að hann væri orðaður við Fredericia eftir stutta dvöl hjá PSG.

Sagður á leið til Fredericia eftir stutta dvöl hjá PSG

Samkvæmt fréttum danskra fjölmiðla hefur Fredericia þegar náð samkomulagi við Lyse um að hann gangi til liðs við félagið sumarið 2027.

Í viðtali við norska fjölmiðilinn, TV 2 viðurkennir Lyse að hann og fjölskylda hans hafi átt erfitt með að aðlagast lífinu í París og sakni þess að vera nær heimahögunum.

Lyse segir jafnframt að framtíð hans hjá PSG sé ekki ákveðin þrátt fyrir að hann sé samningsbundinn félaginu næstu þrjú árin. Ummælin hafa vakið athygli í Danmörku þar sem Fredericia hefur verið að byggja upp metnaðarfullt lið.

Lyse hefur á undanförnum árum verið einn af öflugustu leikmönnum norska landsliðsins og var meðal annars valinn besta vinstri skytta norsku úrvalsdeildarinnar tímabilið 2024/25.

Hann hefur einnig mikla reynslu af Meistaradeild Evrópu eftir veru sína hjá Kolstad og PSG. Lyse hefur þó hvorki staðfest að hann hafi samið við Fredericia né að hann ætli sér að yfirgefa PSG.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top