Hannover á eftir liðsfélaga Hauks Þrastar
Kadir Caliskan /AFP

Þýska úrvalsdeildarliðið Hannover-Burgdorf er samkvæmt þýska miðlinum Sport Bild nálægt því að tryggja sér þjónustu sænsku skyttunnar Edwin Aspenbäck frá Rhein-Neckar Löwen. Félagið leitar að eftirmanni þýska landsliðsmannsins Renārs Uščins sem gengur til liðs við Paris Saint-Germain næsta sumar.

Aspenbäck er 26 ára gömul hægri skytta sem gekk til liðs við Rhein-Neckar Löwen fyrir síðustu leiktíð og hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í þýsku Bundesligunni. Samkvæmt Sport Bild hefur Aspenbäck þegar heimsótt Hannover og eru samningaviðræður sagðar langt komnar.

Aspenbäck er samningsbundinn Rhein-Neckar Löwen til sumarsins 2028 og því þyrfti Hannover að greiða félaginu fyrir að fá hann undan samningi.

Talið er að ákvæði í samningi hans heimili félagaskipti gegn greiðslu sem nemur rúmlega 100 þúsund evrum. Hannover hefur verið á höttunum eftir öflugri hægri skyttu eftir að ljóst varð að Uščins myndi yfirgefa félagið næsta sumar.

Gangi félagaskiptin eftir gæti Aspenbäck orðið liðsfélagi íslenska landsliðsmannsins Sigvalda Björns Guðjónssonar, sem gekk í raðir Hannovers í sumar. Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top