Úrslitaleikur HM gæti farið fram á glergólfi
FEDERICO GAMBARINI/AFP

Til skoðunar er að úrslitaleikur heimsmeistaramóts karla í handbolta, sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári, verði leikinn á sérstöku LED-glergólfi í Lanxess Arena í Köln.

Mark Schober, framkvæmdastjóri þýska handknattleikssambandsins, greindi frá þessu í hlaðvarpinu Kreis Ab en endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin.

Glergólfið vakti mikla athygli þegar það var notað í úrslitahelgi þýsku bikarkeppninnar fyrr á þessu ári. Undir yfirborði þess eru milljónir LED-ljósa sem gera kleift að breyta leikvellinum í risastóran stafrænan skjá.

FEDERICO GAMBARINI/AFP
(Photo by FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Með tækninni er meðal annars hægt að birta merki liðanna, auglýsingar, tölfræði og ýmsar hreyfimyndir beint á gólfinu. Þá býður hún upp á nýja möguleika við kynningar leikmanna og skemmtiatriði í leikhléum.

Schober segir að nokkur atriði þurfi þó að ganga upp áður en hægt verði að taka endanlega ákvörðun.

„Þetta gæti sannarlega orðið að veruleika,“ sagði Schober og bætti við að hann vonaðist til þess að niðurstaða lægi fyrir fljótlega.

Notkun glergólfsins hefur vakið misjöfn viðbrögð meðal leikmanna. Danska stórstjarnan Mathias Gidsel hefur hrósað nýjunginni og telur hana frábæra auglýsingu fyrir handboltann.

FEDERICO GAMBARINI/AFP
Photo: Federico Gambarini/dpa (Photo by FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Aðrir leikmenn hafa hins vegar gagnrýnt undirlagið. Johannes Wasielewski, leikmaður Bergischer HC, kvartaði meðal annars yfir því að gólfið hefði verið ýmist hált eða stamt þegar það var notað í þýsku bikarkeppninni.

Heimsmeistaramótið í Þýskalandi fer fram dagana 13.–31. janúar 2027 en Ísland er meðal þátttökuþjóða. Undanúrslitin og verðlaunaleikirnir fara fram í Lanxess Arena í Köln og því gæti íslenska landsliðið átt möguleika á að leika á hinu umtalaða glergólfi ef af verður og liðið kemst alla leið í undanúrslit.

FEDERICO GAMBARINI/AFP
Photo: Federico Gambarini/dpa (Photo by FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top