Snýr aftur í norska landsliðið eftir tæplega tveggja ára fjarveru
Andreas Gora / AFP

Christian O'Sullivan, fyrrverandi fyrirliði norska landsliðsins í handbolta, er kominn aftur í landsliðshóp Noregs eftir langa fjarveru. Hinn 35 ára gamli O'Sullivan hefur ekki leikið með norska landsliðinu síðan á heimsmeistaramótinu í janúar 2025.

Magnus Andersson, nýráðinn landsliðsþjálfari Noregs, kynnti sinn fyrsta landsliðshóp í dag og þar vakti endurkoma O'Sullivan sérstaka athygli. Sander Sagosen er ekki í hópnum vegna meiðsla.

O'Sullivan lék með þýska stórliðinu Magdeburg í níu ár áður en hann gekk til liðs við TBV Lemgo Lippe í sumar. Þar hefur hann fengið stærra hlutverk og meiri spilatíma en á síðustu misserum hjá Magdeburg. Frammistaða hans með Lemgo hefur nú skilað honum aftur í norska landsliðið.

O'Sullivan hefur leikið 206 landsleiki fyrir Noreg og var um árabil einn af lykilmönnum landsliðsins þegar Norðmenn börðust um verðlaunasæti á stórmótum. Bent Svele, handboltasérfræðingur norska TV 2, segir að enginn vafi leiki á gæðum O'Sullivan.

„Það er enginn vafi á gæðum hans. Hann var ótrúlega mikilvægur hlekkur þegar Noregur var að berjast um verðlaun á stórmótum,“ sagði Svele.

O'Sullivan fær tækifæri til að leika sinn fyrsta landsleik í tæp tvö ár þegar Noregur mætir Georgíu 5. nóvember og Tyrklandi þremur dögum síðar í undankeppni Evrópumótsins.

Þetta er hópurinn:

Markmenn:

Robin Haug, HSV Hamburg

Emil Imsgard, Nordsjælland

Torbjørn Bergerud, Fredericia

Útileikmenn:

Lasse Balstad, GOG Håndbold

Christian O'Sullivan, TBV Lemgo Lippe

Henrik Jakobsen, Fredericia

Martin Hovde, HSV Hamburg

Kasper Thorsen Lien, TVB Stuttgart

Kevin Gulliksen, Elverum Håndball

Harald Reinkind, THW Kiel

Magnus Abelvik Rød, Pick Szeged

Patrick Helland Anderson, Aalborg Håndbold

Mario Matic, Elverum Håndball

Tobias Grøndahl, Füchse Berlin

Sander A. Øverjordet, HC Erlangen

Simen Lyse, Paris Saint-Germain

August Baskår Pedersen, TSV Hannover-Burgdorf

Alexander Blonz, Aalborg Håndbold

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top