Mariam skráð sem markvörður í liði Vals
Egill Bjarni Friðjónsson

Það vakti athygli að Mariam Eradze, leikmaður Vals, var skráð sem markvörður á leikskýrslu þegar Valur vann Gróttu, 26–21, í 6. umferð Olís-deildar kvenna um helgina.

Mariam hefur glímt við meiðsli og ekkert leikið með Valsliðinu á tímabilinu. Skráning hennar sem markvarðar átti sér þó sérstakar skýringar.

Hafdís Renötudóttir sneri aftur í lið Vals eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum en hún gekk ekki alveg heil til skógar í aðdraganda leiksins. Ísabella Schöbel Björnsdóttir, sem gekk til liðs við Val á dögunum, var stödd erlendis og því ekki í leikmannahópnum.

Þjálfarateymi Vals brást við stöðunni með því að hafa Mariam til taks á bekknum sem markvörð, auk Iðunnar Völu Kristbjörnsdóttur.

Hafdís lék þó nær allan leikinn í marki Vals og átti stórkostlegan leik með um 50% markvörslu.

Valur er í þriðja sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki. Næsti leikur liðsins er gegn Stjörnunni í Heklu-höllinni föstudaginn 30. október.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top