Hannes sneri aftur og skoraði þrjú mörk gegn Haukum
Egill Bjarni Friðjónsson

Hannes Höskuldsson lék sinn fyrsta leik með Selfossi á tímabilinu í Olís-deild karla þegar liðið heimsótti topplið Hauka á Ásvelli í 6. umferð deildarinnar á fimmtudagskvöldið í síðustu viku.

Hannes hefur verið frá keppni vegna meiðsla en sneri aftur á völlinn í gær og lét strax að sér kveða. Hann skoraði þrjú mörk fyrir Selfyssinga sem þurftu þó að sætta sig við níu marka tap, 31-22. Hannes var langmarkahæsti leikmaður Selfoss í Olís-deildinni á síðustu leiktíð.

Haukar byrjuðu leikinn betur og náðu snemma góðu forskoti. Heimamenn leiddu með sex mörkum í hálfleik, 17-11, en Selfyssingar komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn í tvö mörk, 20-18.

Lengra komust gestirnir hins vegar ekki því Haukar tóku öll völd á lokakaflanum og fögnuðu að lokum öruggum sigri.

Freyr Aronsson fór á kostum í liði Hauka og skoraði 14 mörk úr 18 skotum. Tryggvi Sigurberg Traustason var markahæstur Selfyssinga með sjö mörk en Hannes, Hákon Garri Gestsson og Anton Breki Hjaltason skoruðu þrjú mörk hver.

Haukar eru með fullt hús stiga á toppi Olís-deildarinnar eftir sex umferðir, samtals tólf stig, en Selfoss situr á botni deildarinnar með eitt stig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top