Danski landsliðsmaðurinn Rasmus Lauge þurfti að fara af velli vegna meiðsla í naumum sigri Bjerringbro-Silkeborg á TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Lauge var sendur á sjúkrahús til frekari skoðunar eftir að hafa fengið högg á fótinn. Bjerringbro-Silkeborg vann leikinn 31-30 en sigurinn gæti reynst liðinu dýrkeyptur þar sem óvissa ríkir um hversu alvarleg meiðsli Lauge eru. Lauge fékk högg rétt neðan við hnéð í samstuði við mótherja og þurfti aðstoð við að komast af leikvellinum. Í kjölfarið var ákveðið að senda hann á sjúkrahúsið í Viborg þar sem hann gekkst undir röntgenmyndatöku til að kanna hvort um beináverka væri að ræða. Meiðslin eru mikið áhyggjuefni fyrir Bjerringbro-Silkeborg enda hefur Lauge glímt við ítrekuð meiðsli undanfarin ár. Ekki liggur enn fyrir hversu lengi hann verður frá keppni en frekari upplýsingar um ástand hans eru væntanlegar að loknum rannsóknum. Íslendingurinn Ísak Gústafsson var í liði TMS Ringsted og skoraði þrjú mörk í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.