Lauge fótbrotinn – Frá keppni næstu vikur
Bo Amstrup /AFP

Danski landsliðsmaðurinn Rasmus Lauge verður frá keppni næstu fimm til sex vikurnar eftir að hafa fótbrotnað í leik Bjerringbro-Silkeborg gegn TMS Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn.

Lauge þurfti aðstoð við að komast af velli eftir samstuð við mótherja og var í kjölfarið sendur á sjúkrahús í Viborg til frekari rannsókna.

Miklar áhyggjur af Lauge – Sendur á sjúkrahús eftir meiðsli

Nú hefur komið í ljós að Lauge brotnaði á dálkbeini, öðru tveggja beina í neðri hluta fótleggsins. Peter K. Berthelsen, íþróttastjóri Bjerringbro-Silkeborg, staðfesti við danska TV 2 að reiknað væri með að Lauge yrði frá keppni í fimm til sex vikur.

Þetta er mikið áfall fyrir Bjerringbro-Silkeborg sem hefur reitt sig á reynslu og gæði Lauge í sóknarleik liðsins. Hinn 35 ára gamli Lauge missir jafnframt af komandi landsliðsverkefni Danmerkur þar sem liðið mætir Spáni og Sviss í nóvember.

Lauge hefur glímt við ítrekuð meiðsli á undanförnum árum og eru þetta enn ein vonbrigðin fyrir leikmanninn sem hefur um árabil verið einn af lykilmönnum danska landsliðsins.

Bjerringbro-Silkeborg vann leikinn gegn TMS Ringsted, 31-30, en Íslendingurinn Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk fyrir Ringsted.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top