Eru menn ekki bara komnir með skot verk í öxlina?
Sævar Jónasson

Haukur Ingi Hauksson og Marel Baldvinsson leikmenn Fram voru markahæstir með sex mörk hvor í tapi liðsins gegn FH í 6.umferð Olís-deildar karla á laugardaginn.

Rætt var um leikinn og frammistöðu Fram í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

,,Haukur Ingi þurfti 17 skot til að skora þessi sex mörk síðan á meðan Marel þurfti átta skot. Þetta stakk þig í augun Stymmi," sagði Sérfræðingurinn þegar hann opnaði umræðuna á skottilraunum Hauks Inga.

,,Heilt yfir er þetta farið að vera svona, Ísak Logi Einarsson leikmaður Stjörnunnar skaut 22 skot í sigri Stjörnunnar gegn KA. Haukur Ingi með 17 skot þarna, ég er meira að klóra mér í hausnum á þróun handboltans í heild sinni eða bara í þessari deild. Eru menn ekki bara komnir með skotverk í öxlina?"

,,Þegar ég var að alast upp í boltanum og var að spila þá var óvanalegt ef menn skutu tíu sinnum í leik," bætti Stymmi við.

Þess má til gamans geta að ísak Logi Einarsson hefur skotið 111 skotum samkvæmt HB Statz í fyrstu sex leikjum Stjörnunnar sem gerir 18,5 skot að meðaltali í leik. Næstur kemur Gunnar Róbertsson leikmaður Vals með 93 skot eða 15,5 skot að meðaltali í leik. Tölfræði Gunnars er hinsvegar ótrúleg því hann er með 82% skotnýtingu sem er með því hæsta í deildinni.

7.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld þegar Fram tekur á móti Haukum klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top