Sjáðu ótrúlegt mark Gidsels – Skoraði liggjandi á gólfinu
FRANK MOLTER / AFP

Mathias Gidsel sýndi enn og aftur hvers vegna hann er talinn einn besti handknattleiksmaður heims þegar hann skoraði ótrúlegt mark fyrir Füchse Berlin í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Markið hefur nú verið valið eitt af fimm glæsilegustu mörkum fjórðu umferðar keppninnar.

Atvikið átti sér stað í leik Füchse Berlin gegn Porto þegar Gidsel komst í hraðaupphlaup. Daninn var felldur á mikilli ferð en tókst þrátt fyrir það að halda stjórn á boltanum.

Á leiðinni niður í gólfið náði Gidsel að kasta boltanum að marki og skora þrátt fyrir að vera nánast kominn í liggjandi stöðu.

Markið vakti mikla athygli og hefur Handknattleikssamband Evrópu, EHF, nú valið það á lista yfir fimm glæsilegustu mörk umferðarinnar.

Auk Gidsels eru mörk frá Francisco Costa hjá Sporting, Jóhan Hansen hjá Skanderborg AGF, Filip Glavaš hjá Zagreb og Aljuš Anžič hjá Celje á listanum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top