Nikolaj Jacobsen valdi 17 mannahóp fyrir komandi verkefni
FEDERICO GAMBARINI / AFP

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta, hefur valið 17 leikmenn fyrir komandi landsliðsverkefni í nóvember. Danir mæta þá Spáni og Sviss í EHF Euro Cup en verkefnið er liður í undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í janúar.

Jacobsen teflir fram afar sterkum hópi þar sem stór hluti þeirra leikmanna sem fögnuðu Evrópumeistaratitlinum í janúar er á meðal þeirra sem voru valdir. Þar á meðal eru stórstjörnurnar Mathias Gidsel, Simon Pytlick og Emil Nielsen.

Nokkrir leikmenn sem hafa ekki reynslu af stórmótum fá einnig tækifæri til að láta ljós sitt skína.

„Það eru mjög margir úr hópnum sem vann Evrópumeistaratitilinn og það gefur auðvitað vísbendingu um hverjir standa næst því að fara á HM. Við höfum ekki komið saman í tæplega hálft ár og það er margt sem við þurfum að fara yfir og vinna áfram með,“ sagði Jacobsen við danska handknattleikssambandið.

Danir mæta Spánverjum í Jyske Bank Boxen í Herning 4. nóvember áður en liðið heimsækir Sviss fjórum dögum síðar. Danska landsliðið kemur saman 2. nóvember til undirbúnings fyrir leikina tvo.

Landsliðshópur Danmerkur

Markverðir

  • Emil Nielsen – Veszprém
  • Kevin Møller – GOG

Hornamenn

  • Emil Jakobsen – Flensburg
  • Magnus Landin – Álaborg
  • Johan Hansen – Skanderborg AGF
  • Niclas Kirkeløkke – Flensburg

Línumenn

  • Magnus Saugstrup – Magdeburg
  • Emil Bergholt – Flensburg
  • Simon Hald – Álaborg
  • Steven Plucnar – GOG

Skyttur og leikstjórnendur

  • Simon Pytlick – Flensburg
  • Lasse Andersson – HØJ
  • Marinus Munk – Álaborg
  • Lasse Møller – Flensburg
  • Mathias Gidsel – Füchse Berlin
  • Mads Hoxer – Álaborg
  • Hjalte Lykke – GOG

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top