Alfreð hringdi í Semper eftir að hafa skilið hann eftir
Bo Amstrup /AFP

Franz Semper, leikmaður SC DHfK Leipzig, hefur ekki gefið upp vonina um að vera í þýska landsliðshópnum á heimsmeistaramótinu í janúar þrátt fyrir að Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hafi ekki valið hann í hópinn fyrir komandi landsleiki í nóvember.

Semper hefur undanfarin misseri verið einn þeirra leikmanna sem Alfreð hefur treyst á í hægri skyttunni hjá þýska landsliðinu. Hann var meðal annars í þýska landsliðinu sem vann silfurverðlaun á Evrópumótinu fyrr á þessu ári.

Leipzig féll úr þýsku Bundesligunni á síðustu leiktíð og ákvað Semper að fylgja félaginu niður í B-deildina. Þrátt fyrir það hefur hann ekki gefið upp vonina um að komast í landsliðshópinn fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í Þýskalandi í janúar.

Alfreð valdi Semper ekki í hópinn fyrir komandi landsleiki en hafði samband við hann í kjölfarið og útskýrði stöðuna.

„Hann talaði við mig og sagði mér að halda áfram að leggja hart að mér. Þá væru enn möguleikar á að vera með í janúar,“ sagði Semper í samtali við Sport Bild.

Semper viðurkennir að hafa orðið fyrir vonbrigðum með að vera ekki valinn en segir símtalið frá Alfreð hafa verið jákvætt.

„Auðvitað verður maður svolítið leiður en ég er enn staðráðinn í að sýna hvað ég get. Það gladdi mig að hann skyldi hringja,“ sagði Semper sem segist ætla að einbeita sér að því sem hann geti sjálfur haft áhrif á næstu vikurnar.

„Það sem ég get stjórnað er að halda áfram að spila vel og vinna leiki með Leipzig.“

Leipzig hefur byrjað tímabilið vel í þýsku B-deildinni og situr í öðru sæti með fjórtán stig eftir átta leiki, jafnmörg stig og topplið HC Elbflorenz. Semper hefur skorað 36 mörk í átta leikjum fyrir Leipzig á tímabilinu og er með 56,25% skotnýtingu. Þá hefur hann gefið 21 stoðsendingu og gert ellefu tæknimistök.

Alfreð valdi tvo nýliða í landsliðshópinn fyrir nóvemberverkefnið, þá Niklas Theiß frá Wetzlar og David Móré frá Eisenach. Þýskaland mætir Belgíu og Slóvakíu í undankeppni EM 2028 í nóvember áður en undirbúningur fyrir heimsmeistaramótið fer á lokastig.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top