Sjáðu mögulega mótherja Hauka í Evrópubikarnum – Dregið á morgun
Sævar Jónasson

Haukar eru í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í 3. umferð Evrópubikars karla á morgun. Evrópska handknattleikssambandið (EHF) birti styrkleikaflokkana í dag.

Hafnarfjarðarliðið tryggði sér sæti í 3. umferðinni með tveimur öruggum sigrum gegn Handball Esch frá Lúxemborg um helgina. Haukar unnu einvígið samanlagt 72-45 og eru nú meðal 32 liða sem eftir standa í keppninni.

Athygli vekur að Haukar geta meðal annars dregist gegn færeyska liðinu H71, sem leikur í Hoyvík. Þá eru gríska stórliðið AEK, slóvenska liðið Gorenje Velenje og svissneska liðið Pfadi Winterthur meðal mögulegra mótherja Hauka.

Alls eru sextán lið í hvorum styrkleikaflokki og munu liðin í efri styrkleikaflokknum dragast gegn liðum úr þeim neðri.

Haukar eru í efri styrkleikaflokki ásamt meðal annars Alkaloid frá Norður-Makedóníu, þar sem Úlfar Páll Monsi Þórðarson leikur, norska liðinu Runar Sandefjord, Olympiacos frá Grikklandi og Vojvodina frá Serbíu. Haukar geta því ekki mætt Alkaloid í þessari umferð.

Dregið verður í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg klukkan 10:00 að íslenskum tíma.

Fyrri leikir 3. umferðar fara fram helgina 21.–22. nóvember og síðari leikirnir viku síðar, 28.–29. nóvember. Sigurliðin sextán tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins sem fara fram í febrúar 2027.

Haukar hafa byrjað tímabilið af miklum krafti og unnið alla sjö leiki sína í Olís-deild karla auk þess að fara örugglega áfram í Evrópubikarnum. Þá vann liðið, Stjörnuna í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins.

Mögulegir mótherjar Hauka: Sloga Doboj, Gorica, Põlva Serviti, H71, AEK, Ramhat Hashron, Raimond Sassari, Dragunas Klaipeda, Lovćen Cetinje, Volendam, Potaissa Turda, Gorenje Velenje, Slovenj Gradec, Dubočica 54, Pfadi Winterthur og Považská Bystrica.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top