Tveir markahæstu leikmenn Olís-deildar karla verða í eldlínunni í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti Val í 8. umferð deildarinnar. Flautað verður til leiks klukkan 19:15 í Heklu-höllinni í Garðabæ. Gunnar Róbertsson, leikmaður Vals, er markahæsti leikmaður deildarinnar eftir fyrstu sjö umferðirnar með 90 mörk en fast á hæla hans kemur Ísak Logi Einarsson, leikmaður Stjörnunnar, með 75 mörk. Það sem vekur sérstaka athygli er ótrúleg skotnýting Gunnars á tímabilinu. Hann hefur skorað 90 mörk úr aðeins 109 skotum og er því með 82,6% skotnýtingu. Þar af hefur hann skorað 26 mörk úr 27 vítaköstum. Gunnar, sem er aðeins 18 ára gamall, hefur því skorað tæplega 13 mörk að meðaltali í leik í fyrstu sjö umferðunum. Ísak Logi hefur sömuleiðis verið í miklu stuði fyrir framan mark andstæðinganna á tímabilinu. Hann hefur skorað 75 mörk úr 131 skoti og er með 57,3% skotnýtingu. Það gerir rúmlega tíu mörk að meðaltali í leik. Þeir hafa þó ekki aðeins verið iðnir við markaskorun því Gunnar hefur einnig gefið 46 stoðsendingar á tímabilinu á meðan Ísak Logi hefur gefið 34 stoðsendingar. Þá hafa báðir fiskað sjö vítaköst fyrir lið sín. Gunnar hefur því komið með beinum hætti að 136 mörkum Vals á tímabilinu, með 90 mörkum og 46 stoðsendingum, á meðan Ísak Logi hefur komið að 109 mörkum Stjörnunnar með 75 mörkum og 34 stoðsendingum. Valur situr í 4. sæti Olís-deildarinnar með tíu stig eftir fyrstu sjö umferðirnar. Stjarnan er hins vegar í 8. sæti með fimm stig og þarf á stigunum að halda til að færa sig ofar í töflunni. Það verður því fróðlegt að sjá hvor markaskorarinn hefur betur í kvöld og hvort Gunnar Róbertsson eða Ísak Logi Einarsson leiðir sitt lið til sigurs í Heklu-höllinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.