Füchse Berlín vann mikilvægan sigur á Kiel, 28–25, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Kiel var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14–12, en heimamenn sneru taflinu við fyrir framan 9.000 áhorfendur í fullsetinni Max-Schmeling-höllinni. Kiel er þrátt fyrir tapið á toppi deildarinnar með 21 stig eftir 13 leiki en Füchse Berlín er í 4.sæti deildarinnar með 16 stig eftir ellefu leiki. Berlín byrjaði betur og komst í 6–3 áður en gestirnir náðu tökum á leiknum. Kiel komst yfir í fyrsta sinn í stöðunni 9–8 og hélt forystunni út fyrri hálfleikinn. Heimamenn létu nokkur góð færi fara forgörðum en Lasse Ludwig hélt þeim inni í leiknum með góðri markvörslu. Í seinni hálfleik þéttist vörn Berlínar og Ludwig hélt áfram að reynast gestunum erfiður. Heimamenn jöfnuðu í 15–15 og náðu loks forystunni á ný í stöðunni 21–20. Fimm mörk í röð komu Berlín síðan í 26–21 þegar um sjö mínútur voru eftir og Kiel tókst ekki að brúa bilið. Mathias Gidsel var markahæstur hjá Berlín með níu mörk en Tobias Gröndahl skoraði sex mörk úr sjö skotum. Ludwig átti stórleik í markinu og varði 16 skot, þar af eitt vítakast. Hjá Kiel var Lukas Zerbe markahæstur með fjögur mörk.hhg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.