Sögðu nei við Kaupmannahöfn þrátt fyrir gylliboð
EHF/kolektiff)

Danska handknattleikssambandið hefur ákveðið að Herning verði gestgjafi stórmóta í handbolta karla árin 2030, 2031 og 2032. Kaupmannahöfn hafði einnig mikinn áhuga á að halda mótin og bauð meðal annars 26 milljónir danskra króna fyrir að fá að halda stórmótin 2031 og 2032.

Upphæðin samsvarar rúmlega hálfum milljarði íslenskra króna en þrátt fyrir þetta myndarlega tilboð varð Herning fyrir valinu.

Torsten Laen, formaður danska handknattleikssambandsins, vill hins vegar ekki gefa upp hvort Herning hafi boðið sambærilega upphæð og Kaupmannahöfn fyrir mótshaldið.

„Það get ég auðvitað ekki tjáð mig um hér. Það eru margir mismunandi þættir sem skipta máli. Ég vil jafnframt leggja áherslu á að það er okkar ábyrgð sem handknattleikssambands að sjá um framkvæmd stórmótanna,“ sagði Laen í samtali við TV 2 Sport.

Ákvörðunin þýðir að Herning verður áfram ein helsta miðstöð stórmóta í alþjóðlegum handbolta en borgin hefur á undanförnum árum ítrekað verið vettvangur stórleikja á heims- og Evrópumótum.

Jyske Bank Boxen í Herning hefur meðal annars verið heimavöllur danska karlalandsliðsins á stórmótum og skapað sér orðspor fyrir mikla stemningu þegar Danir leika fyrir framan þúsundir stuðningsmanna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top