Það var nóg um að vera í Danmörku og Svíþjóð í dag en alls voru átta Íslendingalið í eldlínunni en meðal annars voru Skanderborg í heimsókn í Álaborg og Holstebro unnu mikilvægan sigur á Mors-Thy. Við hefjum yfirferðina í Svíþjóð en Sävehof fengu óvæntan skell á útivelli gegn Alingsås í dag en lokatölurnar urðu 29-21 fyrir heimamenn. Birgir Steinn Jónsson var sem fyrr í liði gestanna en hann skoraði ekki að þessu sinni. Sävehof eru í fimmta sæti deildarinnar með þrettán stig og eru tveimur stigum á eftir efsta liði deildarinnar. Amo unnu þriggja marka sigur á Hallby, 30-27 og eru komnir upp að hlið Sävehof og sitja í sæti fyrir neðan þá einnig með þrettán stig en Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur mörk úr tíu skotum og gaf eina stoðsendingu að auki. Síðasti leikur dagsins í Svíþjóð fór fram í Karlskrona þegar heimamenn tóku á móti Ystad, gestirnir reyndust sterkari að þessu sinni og unnu sterkan tveggja marka sigur, 35-37 og fóru í leiðinni á topp deildarinnar. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf sex stoðsendingar fyrir heimamenn sem sitja tíunda sæti deildarinnar. Í fyrstu deild kvenna í Danmörku töpuðu Rødovre naumlega á heimavelli gegn Fredericia, 24-26 en Inga Dís Jóhannsdóttir skoraði eitt mark fyrir heimakonur sem tíunda sæti deildarinnar. Í karladeildinni urðu gríðarlega óvænt úrslit í Álaborg þegar gestirnir frá Skanderborg mættu í heimsókn, þeim tókst að innbyrða nauman tveggja marka sigur, 27-29 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti erfitt uppdráttar hjá gestunum en hann klikkaði á öllum fjórum skotum sínum en gaf þó þrjár stoðsendingar fyrir liðið. Frábær sigur hjá gestunum en Skanderborg sitja í fimmta sæti deildarinnar eftir sigurinn og eru þremur stigum á eftir Álaborg sem sitja í öðru sætinu. Annað Íslendingalið sem sótti sterkan sigur í dag var TTH Holstebro sem vann þriggja marka heimasigur á Mors-Thy, 32-29. Jóhannes Berg Andrason var flottur í liði heimamanna með fimm mörk úr sex skotum, tvær stoðsendingar og eina brottvísun að auki á meðan Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði ekki að þessu sinni. Holstebro eru núna þremur stigum frá áttunda sætinu sem gefur sæti í úrslitakeppni. Ringsted hafa átt erfitt uppdráttar á þessu tímabili og það hélt áfram í dag en liðið tapaði með ellefu mörkum gegn Kolding á útivelli, 34-23. Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk úr fimm skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir Ringsted sem eru áfram í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig. Ribe-Esbjerg átti einnig í erfiðleikum í dag á útivelli gegn Sønderjyske en þeir töpuðu með fimm mörkum, 33-28. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum, gaf þrjár stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki en eftir góða byrjun á tímabilinu hafa Ribe-Esbjerg fatast flugið að undanförnu og sitja nú í sjötta sæti deildarinnar. Úrslit dagsins: Karlskrona 35-37 Ystad Rødovre 24-26 Fredericia Aalborg 27-29 Skanderborg Holstebro 32-29 Mors-Thy Kolding 34-23 Ringsted Alingsås 29-21 Sävehof Amo 30-27 Hallby Sønderjyske 33-28 Ribe-Esbjerg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.