Haukur Þrastarson var markahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen með níu mörk þegar liðið gerði 32–32 jafntefli við Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá fögnuðu Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í Wetzlar fyrsta deildarsigri tímabilsins. Haukur skoraði eitt marka sinna úr vítakasti en Löwen var 15–14 yfir í hálfleik. Heimamenn þurftu að sætta sig við annað stigið eftir að Lemgo jafnaði metin skömmu fyrir leikslok. Samuel Zehnder var markahæstur gestanna með tíu mörk. Wetzlar vann mikilvægan útisigur á Balingen, 26–23, í baráttunni við botn deildarinnar. Gestirnir leiddu 14–12 í hálfleik. Nýliðinn Miloš Kos lét strax til sín taka og var markahæstur Wetzlar með sjö mörk í sínum fyrsta leik fyrir félagið. Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk, öll úr vítaköstum, þegar Erlangen vann Hamburg, 30–28. Hamburg komst í 12–6 en Erlangen svaraði með frábærum kafla og var komið yfir fyrir hálfleik, 14–13. Gestirnir jöfnuðu í 22–22 þegar tólf mínútur voru eftir en heimamenn reyndust sterkari á lokakaflanum. Marek Nissen og Noah Beyer voru markahæstir liðanna með sjö mörk hvor. Fyrr um daginn vann Füchse Berlín topplið Kiel, 28–25, eftir að hafa verið 12–14 undir í hálfleik. Mathias Gidsel skoraði níu mörk fyrir Berlín. Arnór Þór Gunnarsson og lærisveinar hans í Bergischer vann síðan sex marka sigur á Eisenach, 29–23. Jafnt var í hálfleik, 11–11, og enn í stöðunni 19–19 þegar um stundarfjórðungur var eftir. Þá tóku heimamenn völdin með 8–1 kafla og tryggðu sér stigin tvö. Felix Aellen skoraði níu mörk fyrir Eisenach.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.