Viktor Bjarki með 10 mörk í sigri HK
Egill Bjarni Friðjónsson

HK 2 og Hvíti Riddarinn mættust í Grill 66 deild karla í dag en leikið var í Kórnum.

Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. Sér í lagi fyrstu 20-25 mínúturnar. Var lengi vel jafnt á flestum tölum. Seinustu mínúturnar áttu svo heimamenn í HK frábæran kafla og náðu að komast 5 mörkum yfir áður en gengið var til búningsherbergja. 23-18 voru hálfleikstölur.

Í seinni hálfleik bættu heimamenn bara í og eftir korters leik voru þeir komnir 10 mörkum yfir. Þeir slökuðu ekkert á klónni og sigruðu að lokum 38-29. Sannfærandi og öruggur sigur hjá HK.

Hjá HK var Viktor Bjarki Einarsson með 10 mörk. Patrekur Guðni og Ragnar Sveinn vörðu samtals 15 skot.

Hjá Hvíta Riddaranum var Kristján Hrafn Kristjánsson markahæstur með 11 mörk. Bergvin Snær Alexandersson varði 10 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top