Vill taka upp fyrirkomulag úr knattspyrnu í handboltanum
RONNY HARTMANN /AFP

Martin Schwalb, fyrrverandi þjálfari og landsliðsmaður Þýskalands, vill sjá breytingar á félagaskiptareglum í þýska handboltanum. Hann gagnrýnir harðlega hversu snemma leikmenn semja við ný félög og leggur til að komið verði á sérstökum félagaskiptaglugga yfir vetrartímann.

Það hefur færst í aukana í handboltanum að leikmenn skrifi undir samninga við ný félög mörgum árum áður en félagaskiptin eiga sér stað.

Martin Schwalb, sem er 63 ára gamall, telur þessa þróun óheppilega og segir hana geta haft neikvæð áhrif á bæði leikmenn og liðsheildina.

„Það er ekkert verra en að vera með leikmann í búningsklefanum og vita að hann er þegar búinn að skrifa undir samning við annað félag,“ sagði Schwalb í viðtali við handball-world.

Hann segir slíka stöðu erfiða fyrir alla hlutaðeigandi.

„Þetta er niðurdrepandi fyrir leikmanninn sjálfan og liðsfélaga hans líka. Það er eins og hann sé þegar kominn hálfa leið út úr félaginu. Mér finnst þetta mjög, mjög ófullnægjandi staða.“

Schwalb telur að forsvarsmenn þýska handboltans þurfi að endurskoða núverandi fyrirkomulag.

Ein leiðin sem hann nefnir er að opna sérstakan félagaskiptaglugga yfir vetrartímann svo leikmenn geti í ákveðnum tilfellum gengið fyrr til liðs við félög sem þeir hafa þegar samið við.

„Við þurfum að ræða hvort það eigi að vera annar félagaskiptagluggi yfir veturinn,“ sagði Schwalb.

Uwe Schwenker, forseti þýsku Bundesligunnar, hefur einnig viðrað slíka hugmynd að undanförnu.

Schwalb segir þó að félögin sem hafa samið við leikmenn þurfi þá að vera tilbúin að greiða fyrir að fá þá fyrr.

„Þá þurfa félögin sem hafa þegar samið við leikmann að vera tilbúin að kaupa hann lausan undan samningi.“

Hann horfir þar til fyrirkomulagsins í knattspyrnu þar sem félög semja sín á milli um kaupverð leikmanna.

„Þetta þurfa ekki að vera milljónir. En þetta verður einfaldlega að vera hluti af verðinu.“

Að hans mati þurfa félögin að geta samið um sanngjarna greiðslu sem tekur mið af markaðnum. Náist ekki samkomulag sé það að minnsta kosti ekki leikmanninum að kenna.

Schwalb tekur stöðu Johannes Golla, fyrirliða þýska landsliðsins, sem dæmi um vandamálin sem geta skapast þegar félagaskipti eru ákveðin langt fram í tímann.

Golla samdi um félagaskipti frá Flensburg til MT Melsungen en vill nú snúa aftur til Flensburg.

Schwalb segist skilja þá erfiðu stöðu sem Golla er kominn í.

„Við erum öll mannleg. Maður verður að horfa á þetta þannig. Hann bjóst örugglega ekki við því að hlutirnir myndu þróast svona, alls ekki. Að þetta myndi fara svona og að hann myndi nú vilja snúa aftur. Þetta er erfið staða.“

Á sama tíma segir Schwalb að hann hafi mikla samúð með MT Melsungen.

„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá getur maður eiginlega ekki annað en vorkennt Melsungen svolítið.“

Hann bendir á að félagið hafi lagt mikla vinnu í að bæta ímynd sína innan þýska handboltans á undanförnum árum.

Með því að semja við fyrirliða þýska landsliðsins hafi Melsungen viljað senda sterk skilaboð, bæði innan vallar og utan.

Schwalb gagnrýnir einnig forsvarsmenn þýsku félaganna fyrir að bregðast ekki við vandanum.

Hann telur nauðsynlegt að félögin setjist niður og finni sameiginlegar lausnir í stað þess að láta erfiðar aðstæður halda áfram óbreyttar.

„Þetta er staðan sem við erum í núna. Hvað ætlum við að gera í því? Við gerum ekki neitt. Við látum þetta bara vera eins og það er. Það er óásættanlegt.“

Schwalb er sannfærður um að mál Golla verði ekki það síðasta af þessu tagi.

„Þetta vandamál hverfur ekki bara. Það mun koma oftar upp.“

Hann telur því að þýski handboltinn þurfi að taka á þessum málum af meiri festu.

„Við förum oft bara hálfa leið í handboltanum.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top