Illa gengur hjá lærisveinum Arnórs Atla í Holstebro
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Arnór Atlason og lærisveinar hans í TTH Holstebro eru úr leik í danska bikarnum eftir 29-33 tap gegn Fredericia í átta liða úrslitum keppninnar í vikunni. Tapið er enn eitt áfallið fyrir Holstebro sem hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu og aðeins unnið tvo af síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum.

Holstebro byrjaði leikinn vel og komst meðal annars í 10-5 í fyrri hálfleik. Lærisveinar Arnórs leiddu 17-15 í hálfleik og voru með yfirhöndina lengst af en Fredericia sneri leiknum sér í vil á lokamínútunum og skoraði síðustu fjögur mörk leiksins.

Íslendingarnir Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson voru báðir í leikmannahópi Holstebro. Jóhannes Berg skoraði fimm mörk á meðan Benedikt Gunnar skoraði eitt.

Magnus Storgaard Pedersen, leikmaður Holstebro, leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir leikinn.

„Ásamt úrslitakeppninni í fyrra, þegar við misstum af undanúrslitunum, eru þetta mestu vonbrigðin. Þessi leikur endurspeglar tímabilið okkar hingað til. Þegar kemur að því að gera út um leikina erum við ekki nógu góðir,“ sagði Storgaard við Dagbladet Holstebro-Struer.

Gengi Holstebro hefur verið afar dapurt að undanförnu en liðið hefur tapað sex af síðustu átta leikjum sínum í öllum keppnum. Einu sigrarnir á þessu tímabili komu gegn Benfica í Evrópudeildinni og Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni.

Athygli vekur að Fredericia hefur nú unnið Holstebro tvisvar á rúmum mánuði en liðið vann einnig stórsigur, 33-20, í deildinni þann 3. október síðastliðinn. Næsta verkefni Arnórs og lærisveina hans er heimaleikur gegn Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í dag þar sem liðið fær tækifæri til að rétta úr kútnum eftir erfiðar vikur.

Holstebro er í 10.sæti deildarinnar með 9 stig en Mors-Thy er í sæti neðar með átta stig. Leikurinn er því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið sem bæði eiga síðan leik í Evrópudeildinni í næstu viku.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top