Látin taka pokann sinn eftir sögulegt tap

Rúmenska stórliðið CSM București hefur sagt skilið við Bojönu Popović þjálfara kvennaliðs félagsins í kjölfar slæms gengis í Meistaradeild Evrópu. Ákvörðunin kemur aðeins nokkrum dögum eftir að liðið tapaði með fimmtán marka mun gegn franska stórliðinu Brest Bretagne.

CSM București beið lægri hlut fyrir Brest 25–40 um síðustu helgi en um var að ræða stærsta tap félagsins í sögu Meistaradeildarinnar. Úrslitin virðast hafa verið kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum félagsins en liðið hefur tapað fjórum af fyrstu sjö leikjum sínum í keppninni.

Í tilkynningu frá CSM București kemur fram að félagið og Popović hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfinu. Ástæðan sé sú að árangur liðsins að undanförnu hafi ekki verið í samræmi við væntingar og markmið félagsins.

Popović tók við þjálfun liðsins í nóvember á síðasta ári og hafði því aðeins verið við stjórnvölinn í tæpt ár. Hún er ein þekktasta handknattleikskona sögunnar og hefur einnig getið sér gott orð sem þjálfari eftir að leikmannaferlinum lauk.

Iulia Curea, sem hefur verið hluti af þjálfarateymi CSM București, tekur við sem aðalþjálfari. Curea þekkir félagið vel enda lék hún þar um árabil áður en hún hóf þjálfaraferil sinn.

Athygli vekur að gengi CSM București í rúmensku úrvalsdeildinni hefur verið mun betra en í Meistaradeildinni. Liðið er í öðru sæti deildarinnar með sjö sigra og eitt jafntefli eftir átta umferðir og hefur því enn ekki tapað leik á heimavelli í deildarkeppninni.

Í Meistaradeildinni hefur hins vegar gengið illa og auk stórtapsins gegn Brest hefur liðið meðal annars tapað óvænt á heimavelli gegn norska liðinu Sola og misst niður sjö marka hálfleiksforystu gegn Borussia Dortmund.

CSM București situr í fjórða sæti A-riðils Meistaradeildarinnar með sex stig eftir sjö leiki. Næsti leikur liðsins í keppninni verður einmitt gegn Brest á sunnudaginn, að þessu sinni á heimavelli, þar sem Curea fær það verkefni að reyna að rétta gengi liðsins við.

Popović er jafnframt aðstoðarþjálfari danska kvennalandsliðsins undir stjórn Helle Thomsen og hefur nú framlengt samning sinn við danska handknattleikssambandið til ársloka 2028.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top