Nikolaj Jacobsen útilokar ekki endurkomu í félagsliða boltann
LISELOTTE SABROE / AFP

Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur útilokar ekki að snúa aftur í félagsliða boltann síðar á þjálfaraferlinum. Daninn, sem hefur náð einstökum árangri með danska landsliðið, segir þó að eitt skilyrði þurfi að vera uppfyllt til þess að hann taki aftur við félagsliði.

Í viðtali við danska miðilinn Ekstra Bladet segir Jacobsen að hann hafi enn metnað til að vinna Meistaradeild Evrópu, en sá titill sé einn af fáum stórum titlum sem hann eigi eftir að vinna á þjálfaraferlinum.

„Það kæmi því aðeins til greina ef um væri að ræða félag sem gæti unnið Meistaradeildina innan tiltölulega skamms tíma. Ég ætla ekki að fara eitthvert til þess að byggja upp alveg nýtt lið,“ sagði Jacobsen sem er 54 ára gamall og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem einn sigursælasti landsliðsþjálfari handboltasögunnar.

Undir hans stjórn hefur Danmörk unnið fjóra heimsmeistaratitla í röð, árin 2019, 2021, 2023 og 2025. Þá hefur hann einnig stýrt Dönum til gullverðlauna á Ólympíuleikunum í París árið 2024 og á Evrópumótinu fyrr á þessu ári. Áður en Jacobsen tók við danska landsliðinu árið 2017 þjálfaði hann meðal annars Álaborg og þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen.

Hann varð danskur meistari með Álaborg árið 2013 og vann tvo þýska meistaratitla með Rhein-Neckar Löwen, árin 2016 og 2017. Þrátt fyrir þann árangur hefur Jacobsen aldrei unnið Meistaradeild Evrópu sem þjálfari og viðurkennir að það sé titill sem freisti hans enn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top