Thea fór á kostum í sigri Craiova
sportuldoljean

Thea Imani Sturludóttir var markahæst á vellinum með átta mörk þegar SCM Craiova vann Targu Jiu, 28–22, á heimavelli í rúmensku úrvalsdeildinni í gær. Thea nýtti átta af tíu skotum sínum í leiknum.

Craiova lagði grunninn að sigrinum með frábærum fyrri hálfleik. Heimakonur komust í 5–1 og náðu mest ellefu marka forskoti, 16–5, áður en gestirnir minnkuðu muninn í 16–6 fyrir hálfleik.

Targu Jiu náði að saxa á forskotið í síðari hálfleik en sigur Craiova var öruggur og að lokum munaði sex mörkum á liðunum.

Craiova er í þriðja sæti deildarinnar með 15 stig eftir sigurinn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top