Tveir leikir fóru fram í dag er 13 umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var spiluð. Fyrri leikur dagsins var er Hannover tók á móti Stuttgart. Hannover byrjaði leikinn betur og náði snemma tveggja marka forystu. Heimamenn héldu forskotinu framan af fyrri hálfleik og komust meðal annars í 8–5. Stuttgart náði þó að vinna sig aftur inn í leikinn og jafnaði í 8–8. Eftir það var leikurinn mjög jafn og liðin skiptust á að hafa forystuna. Undir lok fyrri hálfleiks náði Stuttgart yfirhöndinni og fór með tveggja marka forskot í hálfleik, 14–16. Hannover byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og náði að jafna í 17–17. Heimamenn héldu áfram að bæta við mörkum og náðu fimm marka forystu þegar staðan var 27–22 eftir tæplega 47 mínútur. Stuttgart gafst þó ekki upp og fór smám saman að minnka muninn. Þegar um sjö mínútur voru eftir var staðan orðin 30–29 og mikil spenna komin í leikinn. Hannover náði aftur þriggja marka forskoti, 34–31, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Stuttgart svaraði hins vegar með þremur mörkum í röð og Kai Häfner jafnaði leikinn í 34–34 þegar 34 sekúndur voru eftir. Hvorugu liðinu tókst að skora aftur og lauk því þessum spennandi og jafna leik með 34–34 jafntefli. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði fjögur mörk fyrir Hannover-Burgdorf. Seinni leikur dagsins var á milli Erlangen og Balingen, og byrjaði leikurinn nokkuð jafnt og skiptust liðin á að skora fyrstu mínúturnar. Balingen náði þó snemma tveggja marka forskoti, 3–5, en Erlangen vann sig aftur inn í leikinn og komst yfir í 7–6. Eftir um 15 mínútna leik var staðan jöfn, 8–8, en þá tók Balingen að ná yfirhöndinni. Gestirnir skoruðu fjögur mörk í röð og komust í 8–12. Erlangen átti erfitt með að minnka muninn og Balingen hélt áfram að auka forskotið. Í hálfleik var staðan 12–18 fyrir Balingen. Í seinni hálfleik hélt Balingen áfram að stjórna leiknum og náði fljótlega fimm marka forskoti, 15–20. Erlangen reyndi að vinna sig aftur inn í leikinn en náði aldrei að minnka muninn að ráði. Balingen jók forskotið enn frekar og komst í 19–26 þegar um 13 mínútur voru eftir. Undir lok leiksins héldu gestirnir áfram að skora jafnt og þétt á meðan Erlangen átti erfitt með að halda í við þá. Balingen var því með yfirhöndina stóran hluta leiksins og tryggði sér að lokum öruggan sigur, 34–28. Viggó Kristjánsson lék ekki með Erlangen en Andri Már Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Erlangen. Úrslit dagsins: Hannover-Stuttgart 34-34 Erlangan-Balingen 28-34

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.