Óvissa ríkir um stöðuna á Elínu Klöru Þorkelsdóttur, leikmanni íslenska kvennalandsliðsins eftir að hún fór meidd af velli í upphafi vináttulandsleiks Íslands og Svíþjóðar í Malmö í kvöld. Íslenska kvennalandsliðið vann frábæran 29-28 sigur á Svíþjóð en það skyggði þó á sigurinn að Elín Klara þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Hún haltraði af velli og hélt um hnéð á sér og þá var það nokkuð ljóst eftir leikinn að um alvarleg meiðsli væri að ræða þar sem hún haltraði þegar íslensku stelpurnar fögnuðu sigrinum eftir leikinn og eru meiðsli hennar mikið áhyggjuefni með Evrópumótið handan við hornið. „Við vitum lítið eins og er og erum að vinna í því með Svíunum að koma henni í myndatöku á morgun,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari Íslands í samtali við Handkastið í kvöld. Elín Klara er í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu og yrði það mikið áfall fyrir liðið ef meiðslin reyndust alvarleg. Vonandi skýrist staðan á henni á morgun. Ísland og Svíþjóð mætast á nýjan leik í Halmstad á laugardaginn en um er að ræða síðasta leik íslenska liðsins áður en Evrópumótið hefst í næstu viku. Fyrsti leikur Íslands á Evrópumótinu er eftir viku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.