Jafntefli í Íslendingaslag í Danmörku
Ribe Esbjerg

Tvö Íslendingalið mættust í kvöld þegar Ribe-Esbjerg tók á móti Ringsted í dönsku úrvalsdeildinni. Bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu en Ringsted voru neðstir fyrir leikinn með aðeins þrjú stig á meðan heimamenn voru í áttunda sætinu.

Leikurinn var gríðarlega jafn en heimamenn leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 17-15. Gestirnir létu það þó ekki slá sig útaf laginu og þeir sóttu jafntefli með jöfnunarmarki þegar þrettán sekúndur voru eftir, lokatölurnar urðu 27-27.

Í liði heimamanna skoraði Elvar Ásgeirsson þrjú mörk úr sjö skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki á meðan Ísak Gústafsson í liði gestanna klikkaði öllum fimm skotum sínum í kvöld en gaf tvær stoðsendingar. Ringsted fóru upp í næstneðsta sæti deildarinnar eftir jafnteflið og eru með stigi meira en Skive. Ribe-Esbjerg eru áfram í áttunda sæti með sextán stig.

Í gærkvöldi fór fram einn leikur í sænsku deildinni þegar Karlskrona tapaði á heimavelli gegn Önnereds, 31-34. Arnór Viðarsson átti flottan leik fyrir heimamenn en hann skoraði níu mörk úr tíu skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki. Úrslitin voru vond fyrir heimamenn sem eru í fallbaráttu og misstu Önnereds tveimur stigum fram úr sér eftir úrslitin. Karlskrona sitja í ellefta sæti deildarinnar.

Úrslitin:

Ribe-Esbjerg 27-27 Ringsted

Karlskrona 31-34 Önnereds

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top