Sænska handboltagoðsögnin Jonas Källman hefur verið ráðin nýr aðalþjálfari ungverska stórliðsins Pick Szeged. Källman tekur formlega við stjórnartaumunum hjá félaginu þann 1. desember næstkomandi af landa sínum Michael Apelgren og hefur skrifað undir samning sem gildir til sumarsins 2029. Hinn 45 ára gamli Källman þekkir vel til hjá ungverska félaginu en hann lék með liðinu á árunum 2014 til 2021 og var um tíma fyrirliði þess. Hann sneri aftur til félagsins sumarið 2024 þegar hann var ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Mikil kynslóðaskipti eru fram undan hjá Pick Szeged en forráðamenn félagsins vilja leggja aukna áherslu á uppbyggingu ungra leikmanna samhliða því að auka vægi ungverskra leikmanna innan liðsins. „Við erum sannfærð um að alþjóðleg reynsla Jonas Källman, þekking hans á félaginu og liðinu ásamt tryggð hans við handboltann í Szeged skapi sterkan grunn fyrir hann til að gegna lykilhlutverki í þessu ferli sem aðalþjálfari. Við hugsum til langs tíma og gerum okkur grein fyrir því að uppbygging endurnýjaðs liðs krefst tíma, þolinmæði og markvissrar faglegrar vinnu,“ sagði Edward Papp, forseti Pick Szeged, í tilkynningu félagsins. Félagið á sérstakan stað í hjarta hans Källman átti glæsilegan feril sem leikmaður en sænski vinstri hornamaðurinn varð þrívegis Evrópumeistari með spænska stórliðinu Ciudad Real. Þá lék hann 223 landsleiki fyrir Svíþjóð og vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í London árið 2012. Á þeim sjö árum sem Källman lék með Pick Szeged varð hann tvívegis ungverskur meistari, einu sinni bikarmeistari og vann EHF-bikarinn. Framlag hans til félagsins var heiðrað þegar ný keppnishöll félagsins, Pick Arena, var tekin í notkun árið 2021 en nafn hans prýðir þar heiðursvegg goðsagna félagsins. „Szeged hefur alltaf átt sérstakan stað í hjarta mínu. Sem leikmaður og fyrirliði liðsins átti ég hér nokkur af mikilvægustu árum ferils míns. Það er því gríðarlegur heiður og mikil ábyrgð að taka við starfi aðalþjálfara félagsins,“ sagði Källman. „Ég hef trú á þeirri stefnu sem félagið hefur markað sér og hlakka mikið til vinnunnar og þeirra áskorana sem fram undan eru. Ég veit hvað þetta lið þýðir fyrir borgina og stuðningsmenn þess og mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að þeir geti áfram verið stoltir af okkur.“ Sem aðstoðarþjálfari Pick Szeged hefur Källman þegar fagnað ungverska bikarmeistaratitlinum árið 2025 auk þess sem liðið hefur komist í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu tvö tímabil í röð. Nú tekur við nýr kafli hjá ungverska stórliðinu þar sem einn merkasti leikmaður í sögu félagsins fær það verkefni að leiða liðið inn í framtíðina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.