Fimm bestu vinstri hornamennirnir á EM kvenna
Photo by THOMAS KIENZLE / AFP

Evrópumót kvenna í handbolta er á næsta leiti og hefur handboltamiðillinn GoHandball tekið saman lista yfir fimm bestu leikmennina í hverri leikstöðu fyrir mótið. Að þessu sinni er sjónum beint að vinstri hornamönnunum.

Frakkar eiga tvo leikmenn á listanum en Svíþjóð, Danmörk og Holland eiga einn leikmann hver.

Clara Lerby – Svíþjóð

Clara Lerby hefur heldur betur stimplað sig inn á undanförnum misserum. Sænska landsliðskonan hefur vakið mikla athygli bæði í dönsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu og fest sig í sessi sem einn hættulegasti markaskorarinn úr vinstra horninu.

Lerby er mikil markaskorari og afar örugg á vítalínunni. Miðað við frammistöðu hennar í haust má búast við því að hún verði einn mikilvægasti sóknarmaður sænska landsliðsins á Evrópumótinu.

Emma Friis – Danmörk

Það er erfitt annað en að hrífast af leik Emmu Friis. Danska landsliðskonan býr yfir gríðarlegum hraða og frábærri skotnýtingu og hefur sýnt gæði sín á hæsta stigi undanfarin ár.

Friis þarf sjaldnast mörg tækifæri til þess að koma boltanum í netið.

Chloé Valentini – Frakkland

Það er erfitt að ræða bestu vinstri hornamenn heims án þess að nefna Chloé Valentini.

Franska landsliðskonan hefur verið einn áreiðanlegasti markaskorarinn í sinni leikstöðu undanfarin ár og heldur áfram að sýna sterka frammistöðu með Metz Handball.

Nina Dury – Frakkland

Nina Dury er einn yngsti og mest spennandi leikmaðurinn á listanum en hefur þegar sýnt mikla hæfileika.

Með Dury og hinni mun reynslumeiri Valentini búa Frakkar yfir áhugaverðri blöndu af æsku og reynslu í vinstra horninu.

Bo van Wetering – Holland

Bo van Wetering hefur sýnt gæði sín í Meistaradeild Evrópu undanfarin ár.

Þótt hún steli ekki alltaf fyrirsögnunum skilar hún jafnan góðri frammistöðu. Hraði hennar, góð skotnýting og mikil alþjóðleg reynsla gera hana að verðmætum leikmanni fyrir hollenska landsliðið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top