Hafdís Renötudóttir, markvörður Vals og íslenska kvennalandsliðsins fordæmir framkomu áhorfanda í garð annars dómara í leik Vals og Aftureldingar í Olís-deild karla á Hlíðarenda 31. október. Aganefnd HSÍ gerði handknattleiksdeild Vals að greiða 125 þúsund króna sekt vegna atviksins. „Þessi framkoma er óafsakanleg og til skammar. Ég fordæmi hana alfarið og vil biðjast innilega afsökunar sem leikmaður félagsins,“ skrifaði Hafdís í sögu á Instagram eftir að Handkastið greindi frá málinu í gær. Valur fær 125 þúsund króna sekt vegna framkomu áhorfenda í garð dómara Í erindi til HSÍ var áhorfandinn sagður hafa hrópað ítrekað að dómaranum og látið falla niðrandi ummæli, meðal annars ummæli sem vísuðu til kynhneigðar. Áhorfandinn gekkst við því að framkoma hans hefði verið óásættanleg og baðst afsökunar. Hann kvaðst ekki muna eftir að hafa látið ummæli um kynhneigð falla. Aganefnd taldi sannað að framkoma hans gagnvart dómaranum hefði verið vítaverð og sektaði Val sem heimalið og ábyrgðaraðila á framkvæmd leiksins. Annar dómara leiksins, Kári Garðarsson er samkynhneigður og framkvæmdastjóri samtakanna ´78. Áhorfandinn hefur komið að starfi beggja félaga í sjálfboðavinnu. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur hann aðstoðað þjálfarateymi Aftureldingar á tímabilinu og stýrt tækniæfingu hjá liðinu. Hann hefur áður séð um skotæfingar hjá yngri flokkum Vals. Hann var á leiknum á eigin vegum. Bæði félögin og stjórn HSÍ hafa fordæmt framkomuna. Varð sjálf fyrir niðrandi köllum í Eyjum Hafdís, sem er samkynhneigð, varð sjálf fyrir niðrandi köllum sem vísuðu til kynhneigðar hennar í Vestmannaeyjum á síðustu leiktíð. Atvikið átti sér stað á 32. mínútu í öðrum leik Vals og ÍBV í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn, þegar stuðningsmenn ÍBV hrópuðu að henni úr stúkunni. Málið vakti athygli í fjölmiðlum. Hafdís undirbýr sig nú fyrir Evrópumótið sem hefst í næstu viku og verður í eldlínunni með íslenska landsliðinu í Halmstad í dag þegar Ísland mætir Svíþjóð klukkan 16:15 í síðasta vináttulandsleik þjóðanna fyrir Evrópumótið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.