Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands hefur fengið enn eitt áhyggjuefnið upp á borð sitt í aðdraganda heimsmeistaramótsins í janúar. Þýski landsliðsmaðurinn Julian Köster verður frá keppni næstu vikurnar vegna vöðvameiðsla í hægri kálfa. Köster var ekki í leikmannahópi THW Kiel þegar liðið hafði betur gegn Bergischer HC í þýsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Reiknað er með að landsliðsmaðurinn verði frá keppni í nokkrar vikur en ekki liggur fyrir nákvæmlega hvenær hann getur snúið aftur á handboltavöllinn. Köster hefur verið einn af lykilmönnum þýska landsliðsins undir stjórn Alfreðs undanfarin ár en hann gegnir mikilvægu hlutverki bæði í sóknar- og varnarleik liðsins. Alfreður hefur einnig þurft að fylgjast grannt með gangi mála hjá örvhenta leikstjórnandanum Nils Lichtlein, leikmanni Füchse Berlin, sem hefur verið frá keppni vegna axlarmeiðsla frá því í lok október. Óvíst er hvenær hann verður tilbúinn til að snúa aftur. Það styttist óðum í að Alfreður þurfi að velja lokahóp sinn fyrir heimsmeistaramótið og því er ljóst að næstu vikur verða mikilvægar fyrir báða leikmennina.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.