Víðir og Fram 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var í Garðinum á Suðurnesjum. Bæði lið voru frekar fáliðuð í dag. Víðir með 11 leikmenn og Fram 2 aðeins með 10 leikmenn. Það voru sveiflur í fyrri hálfleik. Bæði lið skiptust á að hafa yfirhöndina en Framarar fóru svo með 1 marks forskot inn í hálfleikinn. 15-16 voru hálfleikstölur. Í seinni hálfleik tóku Framarar fljótlega öll völdin þar sem þeir komust mest 8 mörkum yfir. Var sigurinn aldrei í hættu og sigldu Framarar þessu nokkuð örugglega heim. Lokatölur 25-30. Hjá Fram var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 10 mörk. Jóhann Ágústsson varði 12 skot. Hjá Víði var Guðmundur Þórir Sigurðsson markahæstur með 8 mörk. Jan Widera varði 16 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.