Óvæntur 29–28 sigur Íslands á Svíþjóð í Malmö var til umræðu í Handkastinu. Stymmi klippari fékk þá Davíð Má Kristinsson og Ásgeir Gunnarsson til sín í Rapyd-stúdíóið og spurði hvort þeir hefðu átt von á því að lið Arnars Péturssonar legði Svía á þeirra eigin heimavelli. „Nei, svo sannarlega ekki. Þessi úrslit koma manni mikið á óvart. Mjög góð úrslit í undirbúningnum fyrir komandi stórmót,“ sagði Ásgeir. Svíþjóð og Ísland mætast öðru sinni í Halmstad í dag klukkan 16:15. Stymmi á von á því að sænska liðið mæti öðruvísi stemmt til síðari vináttuleiks þjóðanna í dag. Hann las umfjöllun sænsku miðlanna eftir leikinn og rakst þar á lýsingu Johans Flinck á fyrri hálfleiknum. „Johan Flinck drap niður penna og talaði um að sænsku stelpurnar hefðu mætt 30 mínútum of seint til leiks. Fyrst hélt ég að rútunni hefði seinkað en auðvitað var hann að meina að þær hefðu ekki verið til staðar í fyrri hálfleik. Það eru tvö ár síðan sænska liðið pakkaði því íslenska saman,“ sagði Stymmi. Meiðsli Elínar Klöru skyggðu á sigurinn Elín Klara Þorkelsdóttir meiddist í leiknum og verður ekki með Íslandi á EM. „Þetta var stórkostlegur sigur en auðvitað svartur blettur að Elín Klara meiddist og verður ekki með á stórmótinu,“ sagði Davíð Már. „Þetta er gríðarlegt högg fyrir landsliðið. Hún er okkar langbesti sóknarleikmaður,“ sagði Stymmi. Hann og Davíð Már ræddu þann möguleika að Elín Klara hefði meiðst á krossbandi. Eðli meiðslanna hefur ekki verið staðfest. Þeir veltu einnig fyrir sér hvort Arnar Pétursson myndi kalla nýjan leikmann inn í hópinn fyrir EM vegna fjarveru Elínar Klöru. Davíð Már gaf sér það að Arnar Pétursson og Óskar Bjarni Óskarsson væru þessa stundina að ræða þessi mál sín á milli. ,,Við sendum batakveðjur á Elínu Klöru, þetta er mikið högg," bætti Stymmi klippari við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.