Við eigum að fara betur með þennan leik
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigursteinn Arndal (Raggi Óla)

FH og Þór mættust í 7.umferð Olís deildar karla en leikurinn endaði með 34-34 jafntefli. Handkastið ræddi við Sigurstein þjálfara FH eftir leik í Krikanum í kvöld.

,,Það var margt framan að virkilega gott í okkar leik en við dettum í þá gryfju að vera svolítið passívir og þegar hlutirnir fara að reynast okkur erfiðir þá föllum við aðeins frá hvorum öðrum. Varnarlega lekum við í seinni hálfleik sem var búið að vera mjög gott. Við lendum í mikið af brottvísunum og missa menn í rautt og svona sem gerði okkur erfitt fyrir en við eigum að fara betur með þennan leik." sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH við Handkastið eftir leik í kvöld.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top