Oddur og Kári Kristján voru frábærir – FH-ingar sjálfum sér verstir
Skapti Hallgrímsson / Akureyri.net)

Nýliðar Þórs halda áfram að safna stigum í Olís-deild karla og það gerðu þeir í síðustu umferð í Kaplakrikanum þegar liðið heimsótti deildarmeistara FH.

Það gerðu Þórsarar án síns lykilsmanns, Hafþórs Vignissonar sem hefur ekkert leikið með liðinu í síðustu tveimur leikjum eftir að hann meiddist tvívegis á ökkla í leik gegn Stjörnunni í síðustu umferð.

Rætt var um leik FH og Þórs í nýjasta þætti Handkastsins.

,,Það er mikið högg fyrir Þórsarana að missa Hafþór út en aðal sögulínan í þessum leik finnst mér vera síðustu 10-15 mínúturnar þegar Oddur fer á miðjuna og Kári kemur inn á línuna. Þeirra dúó skilar þessu jafntefli. Þeir voru frábærir báðir tveir," sagði Einar Ingi Hrafnsson sem var gestur í nýjasta þætti Handkastsins.

,,FH-ingar voru sjálfum sér verstir, þeir fá á sig vitlausa skiptingu og verða tveimur færri. Staðan er 33-30 fyrir FH þegar fimm mínútur eru eftir,” bætti Stymmi klippari við.

En Kári Kristján Kristjánsson skoraði 29., 30. og 33. mark Þórs í leiknum sem komust yfir í stöðunni 33-34 en það voru FH-ingar sem jöfnuðu undir blálok leiksins. Alls skoraði Kári fimm mörk í leiknum.

Oddur Gretarsson skoraði níu mörk og gaf sjö stoðsendingar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top