Markahæstu leikmenn Olís karla eftir 6.umferð
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Símon Michael Guðjónsson (J.L.Long)

7.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld með einum leik. FH og Selfoss mætast á Selfossi klukkan 19:00 en leikurinn er færður vegna þátttöku FH í Evrópubikarnum í Tyrklandi næstu helgi þar sem liðið spilar tvívegis gegn Nilufer.

Leikur Hauka og Stjörnunnar er stórleikur umferðarinnar og hefst klukkan 19:30 á fimmtudagskvöldið og verður í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Allir aðrir leikir verða sýndir í Handboltapassanum.

6.umferðin
Mánudagur:
19:00 Selfoss - FH

Fimmtudagur:
18:30 KA - Valur
19:00 Þór - HK
19:30 Haukar - Stjarnan

Föstudagur:
19:30 Fram - ÍR

Laugardagur:
15:00 Afturelding - ÍBV

Handkastið hefur tekið saman markahæstu leikmenn Olís-deildarinnar eftir 6.umferðina:

  1. Bjarni Ófeigur Valdimarssonar (KA) - 55 mörk
  2. Elís Þór Aðalsteinsson (ÍBV) - 50 mörk
  3. Hannes Höskuldsson (Selfoss) - 46 mörk
  4. Baldur Fritz Bjarnason (ÍR) - 44 mörk
  5. Árni Bragi Eyjólfsson (Afturelding) - 42 mörk
  6. Freyr Aronsson (Haukar) - 39 mörk
  7. Símon Michael Guðjónsson (FH) - 37 mörk
  8. Morten Boe Linder (KA) - 37 mörk
  9. Birkir Snær Steinsson (Haukar) - 34 mörk
  10. Ívar Logi Styrmisson (Fram) - 33 mörk
  11. Haukur Ingi Hauksson (HK) - 33 mörk

Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út október. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top