Andri Már Rúnarsson (Kristinn Steinn Traustason)
Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Íslands valdi 17 manna leikmannahóp í landsliðsverkefni í lok október þar sem landsliðið kemur saman í Þýskalandi og leikur þar tvo æfingaleiki gegn Þjóðverjum. Fara leikirnir fram fimmtudaginn 30. október í PSD Bank Nürnberg Arena og loks sunnudaginn 2. nóvember í SAP Garden München. Athygli vekur að Snorri Steinn valdi einungis 17 leikmenn í verkefnið þar af þrjá markverði. Alfreð Gíslason þjálfari þýska landsliðsins valdi 18 leikmenn á dögunum í sama verkefni og eru oftar en ekki 18 leikmenn valdir í landsliðsverkefni. Handkastið spurði Snorra Stein einfaldlega út í þá ákvörðun hans, að hann hafi einungis valið 17 leikmenn í komandi verkefni. ,,Það eru nokkrar ástæður fyrir því en á sama tíma hef ég ekki alveg lokað á það að taka átjánda leikmanninn inn. Þar fyrir utan fannst mér ekkert sem öskraði á mig að það ætti einhver að vera þarna frekar en einhver annar. " ,,Þessir strákar sem eru valdir núna eiga ennþá eftir að spila nokkra leiki áður en við hittumst, mismikið auðvitað en ég ætla að taka stöðuna á þeim um miðja næstu viku og sjá hvort menn séu eitthvað laskaðir og hvort ég þurfi að dreyfa eitthvað álaginu í þessum tveimur leikjum gegn Þjóðverjum," sagði Snorri sem bætti við að það gæti vel verið að hann myndi bæta við einum leikmanni í viðbót. Andri Már Rúnarsson leikmaður Erlangen og Blær Hinriksson leikmaður Leipzig eru til að mynda nöfn sem gerðu að öllum líkindum tilkall í að vera í landsliðshópnum að þessu sinni. Snorri segir frammistöðu þeirra tveggja í þýsku úrvalsdeildinni ekki hafa verið nægilega góða í upphafi tímabils. ,,Mér hefur bara fundist eitthvað vanta uppá til þess að þeir séu þessi átjándi maður. Allavegana þannig að þeir séu að öskra á það að ég velji þá. Miðað við frammistöðu þeirra núna á tímabilinu. Ég horfi á flesta leiki hjá þessum strákum og valdi þessa sem ég hef valið fram yfir þá. Þetta eru þeir leikir sem ég vill klárlega skoða í þessum glugga. Mér finnst mikilvægt að eyða tíma í það." Snorri er búinn að teikna upp og ímynda sér hvernig hann sjái fyrir sér hvernig hann ætlar að nýta þetta verkefni eins vel og hægt er fyrir EM í janúar á næsta ári. ,,Mér finnst ég þurfa að sjá Hauk spila á miðjunni hjá okkur. Hann fær risa tækifæri núna í risa glugga. Mér finnst ég þurfa að sjá Þorstein Leó á þessu sviði. Auðvitað er deildin sem hann spilar í, ekki sú besta en hann er að spila í Evrópudeildinni." ,,Ég vil sjá Þorstein fá alvöru mínútur og margar mínútur í svona glugga gegn Þjóðverjum á þeirra heimavelli. Mér finnst engin ástæða að troða inn einhverjum nokkrum mínútum hér og þar," sagði Snorri Steinn í viðtali við Handkastið.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.