Tómas Bragi Starrason - Grótta (Eyjólfur Garðarsson)
Grótta og Fjölnir áttust við í stórleik 7.umferðar í Grill66-deild karla síðastliðið föstudagskvöld þar sem Grótta hafði betur með minnsta mun 29-28. Grótta mætir HBH í 8.umferð Grill66-deildarinnar í kvöld klukkan 18:30. Grótta hafði mikla yfirburði í leiknum lengi vel en ótrúleg seigla í liði Fjölnis skilaði sér í því að liðið jafnaði metin í stöðunni 28-28 þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum. Á þeim tíma voru Fjölnismenn í undirtölu og tóku þá ákvörðun að taka Berg Bjartmarsson markvörð liðsins útaf vellinum meðan Fjölnir var í sókn. Grótta nýtti sér það, Hannes Pétur Hauksson í marki Gróttu var fljótur að sækja boltann í markið. Kastaði boltanum á línumanninn, Tómas Braga Starrason sem var fljótur að taka miðjuna og skaut frá miðjunni í tómt mark Fjölnismanna og tryggði Gróttu sigurinn. Tómas Bragi gekk í raðir Gróttu frá Fjölni í sumar. Mark Gróttu og loka sekúndur leiksins er hægt að sjá hér að neðan. Hress styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina - Í tilefni þess fá allir hlustendur og lesendur Handkastsins 2 fyrir 1 af öllum boozt á Hressbarnum út október. Hress er staðsett á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði. Verði ykkur að góðu.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.