Stymmi Klippari mun í allan vetur spá í spilin og tippa á hvernig komandi umferð mun fara í Olís deildum karla og kvenna. Hér að neðan má sjá hvernig hann telur að 9.umferð fari í Olís deild kvenna. Fram – Haukar (Þriðjudagur 18:30) / Sigurvegari: Haukar Liðin í 5 og 6 sæti deildinnar að mætast. Bæði lið eru eflaust ósátt við stigastöfnun á tímabilinu og þurfa nauðsynlega á sigri að halda til að komast ofar í deildinni. Haukarnir áttu dapra frammistöðu gegn Malaga um helgina í Evrópukeppninni og er þessi leikur snemma í vikunni sökum ferðalags þeirra til Spánar. Ég held að Haukar þjappi sér saman fyrir ferðalagið og vinni þennan leik. Valur – ÍR (Miðvikudagur 19:30) / Sigurvegari: Valur Toppslagur umferðinnar þar sem liðin í fyrsta og öðru sæti mætast. Valur hefur haft tak á ÍR undanfarin ár og það virðist henta ÍR einstaklega illa að mæta Val. Ég held það verði engin breyting á því á miðvikudaginn og Valur vinni þennan leik örugglega. KA/Þór – Selfoss (Laugardagur 15:00) / Sigurvegari: KA/Þór Liðin mættust í bikarkeppninni um daginn þar sem KA/Þór vann öruggan sigur. Selfoss hefur verið í brasi undanfarið og ég held að KA/Þór vinni þennan leik líkt og í bikarkeppninni nokkuð örugglega. Stjarnan – ÍBV (Laugardagur 16:00) / Sigurvegari: ÍBV Stjarnan í leit að sínum fyrsta sigri. ÍBV búnar að vera á mikilli siglingu eftir að hafa dottið óvænt út úr bikarkeppninni. Held ÍBV verði of stór biti fyrir Stjörnuna í þessum leik og Stjarnan mun því sitja áfram á botni deildinnar með 1 stig eftir laugardaginn. 8.umferð (4 réttir)
7.umferð (2 réttir)
6.umferð (3 réttir)
5.umferð (2 réttir)
4.umferð (4 réttir)
3.umferð (3 réttir)
2.umferð (2 réttir)
1.umferð (3 réttir)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.