Mathias Gidsel (Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)
13.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar lauk í fyrradag þegar að tveir leikir áttu sér stað. Áfram er íslendingalið Magdeburg taplaust og situr á toppi deildarinnar með 16 stig. Í gær gaf Dakin handball út lið 13.umferðar og er það eftirfarandi: Sergey Hernandez(Magdeburg) Sergey Hernandez markvörðu íslendingaliðs Magdeburg átti góðan leik þegar lið hans sigraði Wetzlar. Sergey varði 14 bolta (41.2%) Caper Mortensen(Hamburg) Caper Mortensen liðsfélagi Einars Þorsteins átti góðan leik er liðið hans bar sigur af hólmi gegn Erlangan. En Casper skoraði 10 mörk í leiknum. Julian Köster(Gummersbach) Julian Köster lærisveinn Guðjóns Vals átti fínan leik þegar Gummersbach sigraði botnlið deildarinnar í Leipzig. Köster skoraði 7 mörk og gaf 1 stoðsendingu. Leif Tissier(Hannover) Leif Tissier miðjumaður Hannover átti fínan leik þegar lið hans sigraði lærisveina Arnórs Þórs í Bergischer. Leif skoraði 8 mörk ásamt því að hafa gefið 5 stoðsendingar. Mathias Gidsel(Füchse Berlin) Mathias Gidsel og félagar unnu sigur á Hauk Þrastar og félögum í Rhein-Neckar Löwen með þriggja marka mun 30-33. Mathias átti afar góðan leik þar sem hann skoraði 12 mörk og gaf 7 stoðsendingar. Fredrerik Bo Andersen(Hamburg) Fredrerik Bo Andersen hægra hornamaður Hamburg átti hinn fínasta leik þessa umferðina, þegar hann skoraði 9 mörk í sigri á Erlangan. Jannik Kohlbacher(Rhein-Neckar Löwen) Jannik Kohlbacher línumaður Löwen átti góðan leik er Löwen tapaði gegn Füchse Berlin í Sap Arena í fyrradag. Jannik skoraði 9 mörk og gaf 1 stoðsendingu í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.